Dráttarbraut

Image
Image
Image
Image

Dráttarbraut, slippur og skipasmíði

Dráttarbraut Skipavíkur tekur í dráttarbrautina allt að 400 þungatonna skip. Mesta breidd í sleða er 8,6 metrar. Hægt er að taka allt að 27 metra löng skip inn í hús. Dráttarbrautin og sleðinn hefur allur verið endurbættur á síðastliðnum árum.

Slippur og vélsmiðja Skipavíkur hafa tekist á við mörg fjölbreytt verkefni í áranna rás. Eftir að síðasti nýi eikarbáturinn var smíðaður hjá Skipavík árið 1977 þá hefur verið unnið að margvíslegum verkefnum. Af nýlegum verkefnum má meðal annars nefna smíði veltitanks í Breiðafjarðarferjuna Baldur, lengingu bátanna Gunnars Bjarnasonar SH og Mattíasar auk þess að hafa smíðað perustefni á fjölmarga báta undanfarin ár.